Merki KAÍ
Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík

2. BIKARMÓT KAÍ 2002 - 2003
 

Annað bikarmót vetrarins fór fram laugardaginn 16. nóvember í Íþróttahúsi Hagaskóla. Nokkuð góð þátttaka var á mótinu og mættu alls 15 keppendur í karlaflokki en 2 í keppendur í kvennaflokki. Mótið gekk hratt og vel fyrir sig. Að vanda voru margar góðar og skemmtilegar viðureignir. Hér fyrir neðan má sjá úrslit í öllum flokkum og stöðu allra sem fengu stig í stigakeppninni. Gefin eru 5 stig fyrir 1. sæti og 3, 2 og 1 fyrir 2. til 4. sæti.

Helstu úrslit í bikarmótinu urðu sem hér segir:

Kumite karla - 74 kg
1. sæti Andri Sveinsson Fylkir
2. sæti Daníel Pétur Axelsson Þórshamar
3. sæti Diego Björn Valencia Víkingur
4. sæti Bragi Þór Pálsson Þórshamar

 

Kumite karla + 74 kg
1. sæti Sverrir Sigurðsson Fylkir
2. sæti Pétur Freyr Ragnarsson Fylkir
3. sæti Jón Viðar Arnþórsson Þórshamar
4. sæti Ingólfur Snorrason Fylkir

 

Kumite kvenna -57 kg
1. sæti Nanna Pétursdóttir Þórshamar

 

Kumite kvenna +57 kg
1. sæti Kristín al Lahham Fylkir

 

Kata karla
1. sæti Jón Ingi Þorvaldsson Þórshamar
2. sæti Daníel Pétursson Þórshamar
3. sæti Halldór Svavarsson Fylkir
4. sæti Ari Sverrisson Haukar

 

Kata kvenna
1. sæti Kristín al Lahham Fylki
2. sæti Nanna Pétursdóttir Þórshamar