Merki KAÍ
Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík

BIKARMÓT KAÍ Í KARATE - ÚTILÍFSDEILDIN 2000 - 2001

Fjórða og síðasta bikarmót vetrarins fór fram í Íþróttahúsi Breiðabliks í Smáranum laugardaginn 12. maí.

Keppt var í kumite karla +74 kg og -74 kg, kata karla og kumite og kata kvenna.

Eftir mótið fór fram verðlaunaafhending þar sem krýndir voru bæði Bikarmeistara karla og kvenna í Karate veturinn 2000 - 2001 í Útilífsdeildinni. Bikarmeistari karla er Ingólfur Snorrason Fylki og kvenna Sólveig Sigurðardóttir Þórshamri. Lokastaða efstu manna eftir fjögur bikarmót:

Karlaflokkur :
1. sæti Ingólfur Snorrason Fylkir 31 stig, bikarmeistari karla
2. sæti Jón Viðar Arnþórsson Þórshamar 22 stig
3. sæti Jón Ingi Þorvaldsson Þórshamar 18 stig

Kvennaflokkur :
1. sæti Sólveig Sigurðardóttir Þórshamar 31 stig, bikarmeistari kvenna
2. sæti Edda L. Blöndal Þórshamar 20 stig
3. sæti Heiða Björg Ingadóttir KFR 7 stig