Danir unnu Íslendinga
naumlega í landskeppni í karate 5-4 Það lá við að troðfullt Borgarleikhúsið
ætlaði að rifna af spennu þegar íslenskir og danskir karatemenn áttust við í
dag (laugardag), en haldin var nýstárleg karatekeppni hér á landi. Þá
mættust sjö landsliðsmenn hvorrar þjóðar í skemmtilegri keppni. Keppnin fór
þannig fram að einn karl og ein kona frá hvoru landi keppti í kata
(fyrirfram ákveðnar hreyfingar sem framkvæma þarf í réttri röð, réttum hraða
og krafti) og síðan voru háðir sjö kumitebardagar (hálf-frjáls bardagi með
takmarkaðri snertingu).
Íslensku keppendurnir í kata , þau Sólveig Sigurðardóttir og Daníel Pétur
Axelsson, unnu bæði sína keppinauta með glæsilegum kata. Sjö kumitebardagar
voru háðir, þ.a. tveir kvenna, og sigruðu danir fimm þeirra en íslendingar
tvo. Það voru þau Edda L. Blöndal og Jón Ingi Þorvaldsson sem sigruðu hvort
sinn bardaga. Jón Ingi keppti tvisvar sinnum þar sem einn íslensku
keppendanna forfallaðist.
Má til gamans nefna að í danska liðinu eru allir meðlimirnir danskir
meistarar í kata eða kumite, og sumir í hvoru tveggja. Í íslenska liðinu eru
bæði Íslandsmeistarar og karatemenn ársins og í báðum liðum eru karatemenn
sem hafa náð langt í Evrópumótum.
Að sögn Ólafs Wallevik, formanns Karatesambands Íslands munu danska og
íslenska landsliðið þjálfa að verulegu leyti saman á næstu mánuðum og var
þessari keppni því fyrst og fremst er ætlað að styrkja og efla tengsl milli
þjóðanna í því tilliti.
Liðin voru þannig skipuð:
Danmörk:
Mathilde Klint (kata og kumite)
Silas Hecht (kata og kumite)
Charlotte Laiho Foged (kumite)
Torben Christensen (kumite)
Martin Strandgaard (kumite)
Tommy Busk (kumite)
Tomas Bjuring (kumite)
Ísland: