Merki KAÍ
Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík

Íslandsmeistaramót 1986

 

Íslandsmeistaramótið 1986 fór fram 23. mars og var í Laugardalshöllinni. Ekki reyndist unnt að fá hingað til lands alþjóðlegan dómara, eins og til stóð. KAÍ hafði samband við Dómaranefnd EKU mjög tímanlega fyrir mótið, eða nánar tiltekið í desember, en svar barst ekki fyrr en rétt fyrir mótið og var þá málinu vísað á aðrar hendur. Að sjálfsögðu var þá alltof seint að byrja allt uppá nýtt síðustu klukkustundirnar fyrir mótið og var brugðið á gamalkunnugt ráð, þ.e. að fá Óla Wallevik hingað á Frón til að hlaupa í skarðið. Það tókst og mótið fór fram, en mikið hrjáði gömlu verkirnir mótshaldið, þ.e. dómaraleysi og vanþjálfun þeirra, vöntun á starfsfólki og síðast en ekki síst slæm hegðan keppenda og þá þeirra sem voru að horfa á aðrar glímur. Þetta er ljótur blettur á mótshaldi hér á landi og sting ég upp á því að við sameinust öll í því að útrýma þessum göllum sem fyrst.

 

  Gull Silfur Brons
Karatefélag Reykjavíkur 5 4 2
Þórshamar 1 2 5
Breiðablik 1 1 0
Gerpla 1 2 1
Karateskólinn 1 0 0
Stjarnan 0 0 1

Karl Gauti Hjaltason. Úr ársskýrslu KAÍ.

Úrslit urðu:

Kata unglinga:
1. Halldór Narfi Stefánsson, Þórshamar
2. Kristjana Sigurðardóttir, Gerpla
3. Gísli Helgason, Stjarnan
4. Magnús F. Guðlaugsson, Þórshamar

Kata karla:
1. Árni Einarsson, KFR
2. Atli Erlendsson, KFR
3. Sigþór Markússon, Þórshamar
4. Halldór Svavarsson, KFR

Kata kvenna:
1. Jónína Olesen, KFR
2. Kristín Einarsdóttir, Gerpla
3. Ingibjörg Júlíusdóttir, Þórshamar
4. Elín Eva Grímsdóttir, Þórshamar

-65 kg kumite karla:
1. Árni Einarsson, KFR
2. Halldór Svavarsson, KFR
3. Sölvi Rafnsson, Baldur
4. Ágúst Österby, SKS

-73 kg kumite karla:
1. Finnbogi Karlsson, Karateskólinn
2. Ásmundur Ísak Jónsson, Þórshamar
3. Atli Erlendsson, KFR
4. Einar Þorsteinsson, KFR

-80 kg kumite karla:
1. Konráð Stefánsson, KFR
2. Sigurjón Gunnsteinsson, KFR
3. Víkingur Sigurðsson, Þórshamar
4. Einar K.Karlsson, Breiðablik

+80 kg kumite karla:
1. Ævar Þorsteinsson, Breiðablik
2. Ómar Ívarsson, KFR
3. Magnús Blöndal, Þórshamar
4. Helgi Jóhannesson, Gerpla

Kumite karla (opinn flokkur):
1. Atli Erlendsson, KFR
2. Ævar Þorsteinsson, Breiðablik
3. Árni Einarsson, KFR
4. Sigurjón Gunnsteinsson, KFR

Kumite kvenna:
1. Kristín Einarsdóttir, Gerplu
2. Jónína Olesen, KFR
2. Elín Eva Grímsdóttir, Þórshamar
3. Ingibjörg Júlíusdóttir, Þórshamar