Merki KAÍ
Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík

ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í KATA 2004.

Íslandsmeistaramótið í Kata 2004 var haldið laugardaginn 20. mars í Íþróttahúsi Hagaskóla kl. 10.00 - 13.00.
Keppt var í kata karla og kvenna og í liðakeppni í hópkata. Úrslit hófust kl. 12.30.
Keppt var á 2 völlum og er keppt með útsláttarformi með uppreisn.
29 keppendur mættu til leiks auk 8 hópkata liða. 14 í karlaflokki og 15 í kvennaflokki.
Sólveig Sigurðardóttir, Þórshamri, sigraði í kata kvenna. Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, Karatefélagi Reykjavíkur, varði Íslandsmeistaratitilinn frá síðasta ári.
A-karlalið Þórshamars sigraði í hópkata karla og A-kvennalið Þórshamars í hópkata kvenna.
Aðaldómari var Ólafur Wallevik og honum til aðstoðar, Ásmundur Ísak Jónsson, Gretar Örn Halldórsson, Gunnlaugur Sigurðsson, Halldór Svavarsson, Ólafur Helgi Hreinsson, Matthías B. Matthíasson, Árni Þór Jónsson, Edda Lovísa Blöndal og Reinharð Reinharðsson.
Þórshamar fékk því 31 stig í stigakeppni félaga en Karatefélag Reykjavíkur 5.

Úrslit urðu:
 
Kata karla
1. Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson   Karatefélag Reykjavíkur
2. Daníel Pétur Axelsson   Þórshamar
3. Jón Ingi Þorvaldsson   Þórshamar
4. Helgi Jóhannesson   Þórshamar
 
Kata kvenna
1. Sólveig Sigurðardóttir   Þórshamar
2. Auður Olga Skúladóttir   Þórshamar
3. María Helga Guðmundsdóttir   Þórshamar
4. Manúela Magnúsdóttir   Karatefélag Reykjavíkur
 
Hópkata karla
1. Helgi Jóhannesson, Jón Ingi Þorvaldsson, Daníel Pétur Axelsson   Þórshamar-A
2. Davíð Guðjónsson, Jón Einarsson, Tómas Lee Róbertsson   Þórshamar-C
3. Arnar Guðnason, Atli Örn Hafsteinsson, Atli Steinn Guðmundsson   Þórshamar-D
4. Brynjar Aðalsteinsson, Arnar Pétursson, Andri Bjartur Jakobsson   Karatefélag Reykjavíkur
 
Hópkata kvenna
1. Sólveig Sigurðardóttir, Auður Olga Skúladóttir, Bylgja Guðmundsdóttir   Þórshamar-A
2. Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir, María Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Axelsdóttir   Þórshamar-C
3. Manúela Magnúsdóttir, María Tómasdóttir, Kristrún L.Júlíusdóttir   Karatefélag Reykjavíkur
4. Ásta María Sverrisdóttir, Elín Elísabet Torfadóttir, Fríða Bogadóttir   Þórshamar-B
 
Verðlaun félaga:
  Gull Silfur Brons
Karatefélagið Þórshamar 3 4 3
Karatefélag Reykjavíkur 1   1
 
Heildarstig félaga:
Karatefélagið Þórshamar 31
Karatefélag Reykjavíkur 5