ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í KATA.
Íslandsmeistaramótið í kata
fór fram í íþróttahúsi Grafarvogs í dag. 40 keppendur voru frá 7
félögum. Íslandsmeistarar félaga í kata
er Breiðablik, en þeir fengu 19 stig, Karatefélag Akraness (KAK) varð í
öðru sæti með 10 stig og Þórshamar í því þriðja með 9 stig. Þá voru
krýndir nýjir Íslandsmeistarar í einstaklingsflokkum þau Helgi
Jóhannesson, Breiðablik og Eydís Líndal Finnbogadóttir KAK. Þau voru
einnig í hópkataliðum Íslandsmeistara en Breiðablik sigraði í
karlaflokki og KAK í kvennaflokki.
Dómarar á mótinu voru Gunnlaugur Sigurðsson, Ólafur Helgi Hreinsson,
Reinharð Reinharðsson, Jón Ingi Þorvaldsson, Halldór Svavarsson,
Ásmundur Ísak Jónsson, Kristján Gaukur Kristjánsson, Ásdís Elvarsdóttir
og Sigríður Hrönn Halldórsdóttir.

Helgi Jóhannesson og Eydís Líndal
Helstu úrslit urðu:
Kata kvenna
1. Eydís Líndal Finnbogadóttir KAK
2. Hulda Axelsdóttir Þórshamar
3. Fríða Bogadóttir Þórshamar
3. Eyrún Reynisdóttir KAK
Kata karla
1. Helgi Jóhannesson Breiðablik
2. Magnús kr. Eyjólfsson Breiðablik
3. Andri Bjartur Jakobsson KFR
3. Guðbjartur Ísak Ásgeirsson Haukar
Hópkata kvenna
1. KAK Eydís, Eyrún og Guðrún
2. ÞÓRSHAMAR Elín, Inga og Fríða
3. Breiðablik D Björg, Guðrún og Arna
3. Breiðablik E Hlín, Fjóla og Bryndísa Jara
Hópkata karla
1. BREIÐABLIK - A Helgi, Einar og Magnús
2. BREIÐABLIK - B Pálmar, Eyþór og Jón Andri
3. HAUKAR Guðbjartur Ísak, Kristján og Anton
3. ÞÓRSHAMAR - A Daníel, Jón Ingi og Tómas
Verðlaun félaga: |
|
Gull |
Silfur |
Brons |
Stig |
Karatedeild Breiðabliks |
2 |
2 |
2 |
19 |
Karatefélag Akraness |
2 |
0 |
1 |
10 |
Karatefélagið Þórshamar |
0 |
2 |
2 |
9 |
Haukar |
0 |
0 |
2 |
3 |
Karatefélag Reykjavíkur |
0 |
0 |
0 |
1 |
|