![]() Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík |
ÍSLANDSMEISTARAMÓT FULLORÐINNA Í KATA 2010 Íslandsmeistarmótið í Kata 2010 fór fram í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 13. mars og hófst kl. 11.00 Úrslit hófust kl. 13.30 og lauk mótinu með verðlaunaafhendingu kl. 14.00. Yfirdómari á mótinu var Helgi Jóhannesson og aðrir dómarar, Reinharð Reinharðsson, Jón Ingi Þorvaldsson, Jón Andri Sigurðarson, Matthías B. Matthíasson, Sigurbjörn Jónsson, Ágústa Andrésdóttir og Birkir Jónsson. Nýr Íslandsmeistari karla í kata var krýndur í lok mótsins, Elías Snorrason, KFR, og Hekla Helgadóttir, Þórshamri, er áfram Íslandsmeistari kvenna í kata. Lið Þórshamars sigraði í hópkata karla og kvenna en karlarnir unnu sigur á liði KFR í úrslitum og konurnar sigruðu lið KAK í úrslitum. Þórshamar vann félagsbikarinn, með flest stig í lok móts.
![]() Verðlaunahafar á ÍM Kata 2010. Heildarúrslit: Kata kvenna:
1. Þórshamar 16 |