ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í KUMITE 2001
Sunnudaginn 14.október fór
Íslandsmeistaramót í kumite fram í íþróttahúsinu við Austurberg. Mótið
var mjög fjölmennt og hefur þátttakan aukist ár frá ári. Mótið gekk
vel fyrir sig og voru margir mjög spennandi bardagar sem áttu sér
stað. Meistararnir úr þyngdarflokkum karla frá því í fyrra vörðu allir
sína titla, Daníel Axelsson í -65kg, Halldór Svavarsson í -73kg, Jón
Ingi Þorvaldsson í -80kg og Ingólfur Snorrason í +80kg. Nýr meistari
varð í opnum flokki karla, en Jón Ingi Þorvaldsson vann opna flokkinn
eftir mjög spennandi bardaga við sigurvegara tveggja síðustu ára Ingólf
Snorrason, Fylki. Edda Blöndal varð svo meistari í opnum flokki kvenna
8 árið í röð. Í ár var í fyrsta skipti keppt í þyngdarflokkum kvenna
en undanfarin ár hefur einungis verið keppt í opnum flokki.
Sigurvegari í -57kg kvenna varð Arna Steinarsdóttir, en sigurvegari í
+57 kg varð Edda Blöndal. Í sveitarkeppni kvenna varði A lið
Þórshamars titil sinn frá því í fyrra eftir öruggan sigur á sveit KFR.
Mikið gekk á í sveitarkeppni karla sem oftast er hápunktur
Íslandsmeistaramóts í kumite. Til úrslita kepptu sömu sveitir og í
fyrra Þórshamar og Fylkir, en Þórshamar hefur verið sigurvegarinn
síðustu 3 ár. Úrslitin réðust í síðasta bardaga þegar Halldór
Svavarsson úr Fylki og Jón Ingi Þorvaldsson úr Þórshamri áttust við.
Viðureigninni lauk með sigri Halldórs og varð Fylkir Íslandsmeistari í
sveitakeppni karla í fyrsta skipti. Karatefélagið Þórshamar varð svo
Íslandsmeistari félaga eftir að stig höfðu verið reiknuð út, hluti 46
stig af 90 mögulegum. Stig eru reiknuð eftir fjölda verðlauna sem
félögin fá, 3 stig fyrir 1.sæti, 2 stig fyrir 2. sæti og 1 stig fyrir
3.sæti, síðan vegur sveitakeppni karla þrefalt í hverju sæti og
sveitakeppni kvenna tvöfalt.
Úrslit í einstökum flokkum urðu sem hér segir;
|
Kumite karla -65 kg |
|
|
|
Kumite karla -73 kg |
|
1.sæti |
Daníel P. Axelsson |
Þórshamar |
|
1.sæti |
Halldór Svavarsson |
Fylkir |
2.sæti |
Bragi Þór Pálsson |
Þórshamar |
|
2.sæti |
Steinn Stefánsson |
Þórshamar |
3.sæti |
Konráð Sigursteinsson |
Fylkir |
|
3.sæti |
Jón Viðar Arnþórsson |
Þórshamar |
4.sæti |
Sveinn G. Þórhallsson |
Fylkir |
|
4.sæti |
Guðmundur Jónsson |
KFR |
|
|
|
|
|
|
|
|
Kumite karla -80 kg |
|
|
|
Kumite karla +80 kg |
|
1.sæti |
Jón Ingi Þorvaldsson |
Þórshamar |
|
1.sæti |
Ingólfur Snorrason |
Fylkir |
2.sæti |
Sverrir Sigurðsson |
Fylkir |
|
2.sæti |
Karl Viggó Vigfússon |
Þórshamar |
3.sæti |
Rúnar Ingi Ásgeirsson |
KFR |
|
3.sæti |
Bjarni Kærnested |
Þórshamar |
4.sæti |
Konráð Stefánsson |
KFR |
|
4.sæti |
Benedikt Helgason |
Fylkir |
|
|
|
|
|
|
|
|
Kumite kvenna -57 kg |
|
|
|
Kumite kvenna +57 kg |
|
1.sæti |
Arna Steinarsdóttir |
Þórshamar |
|
1.sæti |
Edda L. Blöndal |
Þórshamar |
2.sæti |
Snædís Baldursdóttir |
Þórshamar |
|
2.sæti |
Sólveig Sigurðardóttir |
Þórshamar |
3.sæti |
Kristín al Lahham |
Fylkir |
|
3.sæti |
Heiða B. Ingadóttir |
KFR |
4.sæti |
Bylgja Guðmundsdóttir |
Þórshamar |
|
4.sæti |
Auður Olga Skúladóttir |
Þórshamar |
|
|
|
|
|
|
|
|
Opinn flokkur karla |
|
|
|
Opinn flokkur kvenna |
|
1.sæti |
Jón Ingi Þorvaldsson |
Þórshamar |
|
1.sæti |
Edda L. Blöndal |
Þórshamar |
2.sæti |
Ingólfur Snorrason |
Selfoss |
|
2.sæti |
Karen Ósk Sigþórsdóttir |
KFR |
3.sæti |
Karl Viggó Vigfússon |
Þórshamar |
|
3.sæti |
Sólveig Sigurðardóttir |
Þórshamar |
4.sæti |
Jón Viðar Arnþórsson |
Þórshamar |
|
4.sæti |
Auður Olga Skúladóttir |
Þórshamar |
|
|
|
|
|
|
|
|
Liðakeppni karla |
|
|
|
Liðakeppni
kvenna |
|
1.sæti |
Fylkir - A |
|
|
1.sæti |
Þórshamar - A |
|
2.sæti |
Þórshamar |
|
|
2.sæti |
KFR |
|
3.sæti |
Fylkir - B |
|
|
3.sæti |
Fylkir |
|
4.sæti |
KFR |
|
|
4.sæti |
Þórshamar - B |
|
-
- Heildarárangur einstakra félaga;
Félag |
Gull |
Silfur |
Brons |
Heildarstig |
Þórshamar |
7 |
6 |
4 |
46 |
Fylkir |
3 |
1 |
4 |
22 |
KFR |
|
2 |
2 |
8 |
Selfoss |
|
1 |
|
2 |
|