![]() Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík |
ÍSLANDSMEISTARMÓT Í KUMITE 2010
Íslandsmeistaramótið í kumite, annarri af tveimur keppnisgreinum í karate, fór fram í dag í íþróttahúsi Hauka að Ásvöllum.
Margir glæsilegar bardagar áttu sér stað og enduðu sumir í framlengingu. Allt okkar besta karatefólk tók þátt í mótinu dag og
voru margir að stíga sín fyrstu skref í fullorðinsflokki, þar sem aldursmörkin eru 16 ára í þyngdarflokkum en 18 ár í opnum flokki.
Þau sem bestu árangri náðu í dag voru þau Telma Rut Frímannsdóttir, Aftureldingu, og Ingólfur Snorrason, Fylki, sem urðu bæði
tvöfaldir meistarar í einstaklingsflokkum. Þau unnu bæði sína þyngdarflokka en einnig opna flokkinn, voru þau í raun ósigruð
eftir daginn. Að auki varð Ingólfur meistari í sveitakeppni sem Fylkir vann en í liðinu með Ingólfi voru þeir Andri Sveinsson
og Arnór Ingi Sigurðsson. Yfir 40 keppendur tóku þátt í 9 flokkum. Þegar öll stigin hafa verið talin saman þá varð Fylkir
Íslandsmeistari félaga með 28 stig. Mótsstjóri var Þórunn Ýr Elíasdóttir og yfirdómari Helgi Jóhannesson.
![]() Á myndinni má sjá alla verðlaunahafa og eru Íslandsmeistararnir í fremri röð. Frá vinstri eru Helena Montazeri, Elías Guðni Guðnason, Telma Rut Frímannsdóttir, Ingólfur Snorrason, Andri Sveinsson, Arnór Ingi Sigurðsson og Elías Snorrason. Hér fyrir neðan má sjá heildarúrslit
Karlar -60 kg |