Meistaramót barna í Kata 2004
Meistaramót barna í Kata 2004 fór fram 25. janúar í Íþróttahúsi
Breiðabliks, Smáranum, og hófst kl. 9.30.
Fjöldi keppenda var um 270 og er þetta lang fjölmennasta karatemót
ársins. Meistaramót barna í kata er haldið í annað sinn í ár en var
áður partur af Unglingameistaramótinu. Átta karatefélög og
karatedeildir sendu keppendur á mótið. Aldur keppenda á Meistaramóti
barna er 5-12 ára (f. 1991-1998). Eins og sjá má á keppendafjölda er
karatestarf í miklum blóma um þessar mundir!
Að þessu sinni var reynt nýtt fyrirkomulag og var mótinu skipt í tvo
hluta. Í fyrri hlutanum voru yfir 150 börn en í þeim seinni um 110.
Keppt var á 4 völlum samtímis. Keppni 9-12 ára hófst kl. 9:45 og fyrri
úrslit voru kl. 12:00. Keppni 8 ára og yngri hófst kl. 13:00 og seinni
úrslit voru kl. 15:00. Sjá mátti margar góðar Kata og lögðu börnin sig
öll fram í keppninni.
Sérstakar þakkir fá keppendur, dómarar, starfsmenn, liðsstjórar og
foreldrar sem lögðust á eitt um að gera þetta að skemmtilegu móti og
Karateíþróttinni til framdráttar.
Mótsstjóri var Indriði Jónsson, Breiðabliki og yfirdómarar Ólafur
Wallevik og Helgi Jóhannesson. Fá þeir sérstakar þakkir frá mótanefnd
KAÍ.
Karatefélag Reykjavíkur stóð uppi sem Barnameistari félaga í Kata
árið 2004 með 35 stig og varði þar með titil sinn frá í fyrra. Gefin
eru stig fyrir 1 - 3 sæti, 3, 2, og 1 stig en tvöfalt fyrir hópkata.
Nöfn allra sem unnu til verðlauna má lesa hér fyrir neðan auk
skiptingar verðlauna og heildarstiga félaga. |
Úrslit urðu: |
|
Kata barna fædd 1997 og 1998. (11 keppendur) |
1. Elena Brynjarsdóttir |
Fylkir |
2. Hera Björg Jörgensdóttir |
Breiðablik |
3. Karen Tinna Karlsdóttir |
Víkingur |
|
Kata barna fædd 1996. (32 keppendur) |
1. Katrín Hrefna Karlsdóttir |
Víkingur |
2. Davíð Þórir Reynaldsson |
Víkingur |
3. Harald Sigurvin Þorsteinsson |
Víkingur |
|
Kata barna fædd 1995. (49 keppendur) |
1. Jovan Kujundzik |
Karatefélag Reykjavíkur |
2. Sigurður Bessi Arnarsson |
Karatefélag Reykjavíkur |
3. Vésteinn Þrymur Ólafsson |
Karatefélag Reykjavíkur |
|
Kata barna fædd 1994. (44 keppendur) |
1. Jason Vu |
Víkingur |
2. Breki Bjarnason |
Þórshamar |
3. Guðni Hrafn Pétursson |
Fulkir |
|
Kata barna fædd 1993. (51 keppandi) |
1. Kristófer Ísak Karlsson |
Karatefélag Reykjavíkur |
2. Gunnhildur Grétarsdóttir |
Fylkir |
3. Eggert Arnarson |
Fylkir |
|
Kata barna fædd 1992. (39 keppendur)
|
1. Aron Þór Ragnarsson |
Þórshamar |
2. Dagný Egilsdóttir |
Akranes |
3. Thelma Rut Frímannsdóttir |
Afturelding |
|
Kata barna fædd 1991. (38 keppandi)
|
1. Goði Ómarsson |
Karatefélag Reykjavíkur |
2. Fanney Gunnarsdóttir |
Karatefélag Reykjavíkur |
3. Aldís Tómasdóttir |
Karatefélag Reykjavíkur |
|
Hópkata barna fædd 1995 og síðar. (14 lið)
|
1. Sigurður Bessi Arnarsson, Jovan Kujundzik, Vésteinn Þrymur Ólafsson |
Karatefélag Reykjavíkur |
2. Hans Patrekur Hansson, Heiðar Benediktsson, Lúðvík Már
Matthíasson | Breiðablik |
3. Davíð Þórir Reynaldsson, Katrín Hrefna Karlsdóttir,
Jason Vu | Víkingur |
|
Hópkata barna fædd 1993 og 1994. (19 lið)
|
1. Jónas Samsudin, Kristján Harðarson, Kristófer Ísak
Karlsson |
Karatefélag Reykjavíkur |
2. Hrafn Hlíðdal Þorvaldsson, Guðni Hrafn Pétursson,
Elías Guðni Guðnason | Fylkir |
3. Egill Birnir Björnsson, Jónas Atli Gunnarsson, Karitas
Sigurðardóttir | Fylkir |
|
Hópkata barna fædd 1991 og 1992. (20 lið)
|
1. Aldís Tómasdóttir, Fanney Gunnarsdóttir, Goði Ómarsson |
Karatefélag Reykjavíkur |
2. Gunnhildur H. Grétarsdóttir, Jóhanna Brynjarsdóttir,
Jóhanna Sverrisdóttir | Fylkir |
3. Guðmundur Heimisson, Snæbjörn Valur Ólafsson,
Viktor Snær Sveinbjörnsson | Karatefélag Reykjavíkur |
|
Verðlaun félaga: |
| Gull | Silfur |
Brons | Stig |
Karatefélag Reykjavíkur |
6 |
2 |
3 | 35 |
Fylkir | 1 |
3 |
3 | 17 |
Víkingur | 2 |
1 |
3 | 12 |
Breiðablik | 0 |
2 |
0 | 6 |
Þórshamar | 1 |
1 |
0 | 5 |
Akranes | 0 |
1 |
0 | 2 |
Afturelding | 0 |
0 |
1 | 1 |
Haukar | 0 |
0 |
0 | 0 |
|