![]() Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík |
UNGLINGAMEISTARAMÓT Í KATA 2004 Unglingameistaramót í Kata
2004 fór fram laugardaginn 14. febrúar í íþróttahúsinu við Vesturgötu,
Akranesi. Mótið hófst kl. 12.00 og lauk kl. 16.00. Um 90 keppendur tóku
þátt í mótinu sem er nokkru meira en í fyrra. Nú var keppt í 4
aldursflokkum í kata og var tveim eldri flokkunum kynjaskipt, þannig að
keppt var í 6 flokkum í kata og svo 3 flokkum í hópkata. Allir starfsmenn, dómarar, liðsstjórar, keppendur og síðast en ekki síst Karatefélag Akranes fá þakkir fyrir góða framkvæmd mótsins. Karatefélagið Þórshamar stóð uppi með flest stig í lok mótsins og eru Unglingameistarar félaga í Kata 2004 en gefin eru stig fyrir 1 - 3 sæti, 3, 2, og 1 stig en tvöföld stig eru síðan veitt fyrir hópkata. Nöfn allra sem unnu til
verðlauna má lesa hér fyrir neðan auk skiptingar verðlauna og
heildarstiga félaga.
|