![]() Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík |
UNGLINGAMEISTARAMÓT Í KATA 2005 Unglingameistaramót í Kata
2005 fór fram laugardaginn 12. febrúar í íþróttahúsinu við Vesturgötu,
Akranesi. Mótið hófst kl. 12.00 og lauk kl. 16.00. Um 80 keppendur tóku
þátt í mótinu sem er svipað og í fyrra. Keppt var í 6 flokkum í kata og 3 flokkum í hópkata. Allir starfsmenn, dómarar, liðsstjórar, keppendur og síðast en ekki síst Karatefélag Akranes fá þakkir fyrir góða framkvæmd mótsins og eru þeim og öðrum er að mótinu komu þakkað kærlega fyrir mjög gott mót. Eins er Akurnesingum þakkað fyrir gestrisni og góðar móttökur en rúmlega 60 manna hópur gisti í Brekkubæjarskóla og átti góðar stundir m.a. í Bjarnalaug. Karatefélagið Þórshamar stóð uppi með flest stig í lok mótsins og eru Unglingameistarar félaga í Kata 2005 en gefin eru stig fyrir 1 - 3 sæti, 3, 2, og 1 stig en tvöföld stig eru síðan veitt fyrir hópkata. Nöfn allra sem unnu til
verðlauna má lesa hér fyrir neðan auk skiptingar verðlauna og
heildarstiga félaga.
|