Fullorðnir – Karatesamband Íslands

Aðalheiður og Elías Íslandsmeistarar í kata
Aðalheiður og Elías Íslandsmeistarar í kata

Aðalheiður Rósa Harðardóttir úr Breiðabliki varð í dag Íslandsmeistari í kata kvenna þriðja árið í röð en hún lagði liðsfélaga sinn Svönu Kötlu Þorsteinsdóttur í úrslitum. Íslandsmótið fór fram í Hagaskóla í morgun.

Aðalheiður varð tvöfaldur meistari því hún vann einnig liðakeppnina með Breiðabliki ásamt Svönu Kötlu og og Kristínu Magnúsdóttur.

Elías Snorrason úr KFR varð Íslandsmeistari í karlaflokki en hann lagði Heiðar Benediktsson úr Breiðabliki í úrslitum. Heiðar vann ríkjandi Íslandsmeistara, Kristján Helga Carrasco úr Víkingi í undanúrslitum.

Breiðablik vann einnig hópkata karla en liðið skipuðu þeir Heiðar Benediktsson, Davíð Freyr Guðjónsson og Magnús Kr. Eyjólfsson.

Breiðablik bar höfuð og herðar yfir önnuð lið á mótinu og endaði langefst í stigakeppninni og varð því Íslandsmeistari í kata þriðja árið í röð.

Kata karla:

1. Elías Snorrason, KFR

2. Heiðar Benediktsson, Breiðabliki

3. Kristján Helgi Carrasco, Víkingi

3. Davíð Freyr Guðjónsson, Breiðablik

Kata kvenna:

1. Aðalheiður Rósa Harðardóttir, Breiðabliki

2. Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðabliki

3. Kristín Magnúsdóttir, Breiðabliki

3. Kristín Pétursdóttir, Breiðabliki

Hópkata karla:

1. Breiðablik, Davíð Freyr Guðjónsson, Heiðar Benediktsson, Magnús Kr. Eyjólfsson.

2. Þórshamar, Breki Guðmundsson, Bogi Benediktsson, Eiríkur Örn Róbertsson.

3. Víkingur, Kristján Helgi Carrasco, Sverrir Ólafur Torfason, Sindri Pétursson.

Hópkata kvenna:

1. Breiðablik A, Aðalheiður Rósa Harðardóttir, Svana Katla Þorsteinsdóttir, Kristín Magnúsdóttir.

2. Breiðablik C, Kristín Pétursdóttir, María Orradóttir, Hera Björg Jörgensdóttir.

3. Breiðablik B, Björg Jónsdóttir, Tinna Rut Finnbogadóttir, Geirrún Tómasdóttir.

Heildarstig félaga:

1. Breiðablik – 28 stig

2. Þórshamar – 4 stig

3. KFR – 3 stig

4. Víkingur – 3 stig

Sjáðu Elías framkvæma kata í úrslitum hér

Úrslit Íslandsmót fullorðina í Kata 2013

Íslandsmeistaramót fullorðinna í kumite 2012
Íslandsmeistaramót fullorðinna í kumite fram í Fylkissetrinu, húsnæði Karatedeildar Fylkis, laugardaginn 17. nóvember. Fjöldi keppenda frá 7 félögum voru skráðir til leiks. Margar mjög skemmtilegar viðeignir áttu sér stað en maður mótsins var Kristján Helgi Carrasco, úr Víking, sem varð þrefaldur Íslandsmeistari í dag, í -75kg flokki, opnum flokki karla og í sveitakeppni karla, enda fór hann ósigraður frá öllum sínum viðureignum.

Guðbjartur Ísak Ásgeirsson, Haukum, byrjaði á að vinna -67kg flokkinn eftir snarpa bardaga við Sindra Pétursson, Víking, og Elías Guðna Guðnason, Fylki. Í -75kg flokki vann Kristján Helgi nokkuð örugglega eftir góða baráttu við Jóhannes Gauta Óttarsson úr Fylki. Í næsta flokki, -84kg, þá vann Pétur Rafn Bryde úr Víking annað árið í röð en það sama gerði félagi hans úr Víking Diego Björn Valencia þegar hann vann +84 kg flokkinn annað árið í röð.

Í opnum flokki kvenna mættust í úrslitum Telma Rut Frímannsdóttir, Aftureldingu, og Helena Montazeri, Víking, þar sem Telma bar sigur úr býtum og er það 3ja árið í röð sem Telma vinnur opna flokkinn. Í opnum flokki karla var svo nýr sigurvegari krýndur þegar Kristján Helgi Carrasco bar sigurorð af Diego Birni Valencia en þeir eru báðir úr Víking, þeir félagar kepptu einnig einnig til úrslita í fyrra þar sem Björn vann. Í Sveitakeppni karla þá varði sveit Víkings Íslandsmeistaratitil sinn frá því í fyrra eftir góða bardaga við sveit Hauka. Í sveit Víkings voru Kristján Helgi Carrasco, Diego Björn Valencie og Pétur Rafn Bryde. Þegar stigin voru svo lögð saman eftir daginn þá stóð Víkingur uppi sem Íslandsmeistari félaga í kumite fullorðinna með 20 stig.

Yfirdómari mótsins var Helgi Jóhannesson og mótsstjóri Agnar B. Helgason.