banner

Sindri hefur lokið keppni á 2. degi á HM

Á 2.degi heimsmeistaramóts unglinga í karate, sem fram fer í Guadalajara Spáni, keppti Sindri Pétursson í kumite -68kg Junior.  Sindri mætti T.Neve frá Danmörku í fyrstu umferð og tók forystuna strax í upphafi með góðu höggi, lengi var staðan 1-0 fyrir Sindra en Neve náði að skora 2 stig í seinni hluta bardagans og endaði með sigurinn þegar bardaganum lauk.  Daninn vann næstu viðureign á eftir en beið svo lægri hlut, þar með var ljóst að Sindri átti ekki möguleika á uppreisnarviðureign.  Þar með hafa íslensku keppendurnir lokið keppni á heimsmeistaramótinu.  Þess má geta að þetta er fyrsta sinn sem Sindri keppir á heimsmeistaramóti.
HM_unglinga_Sindri

 

About Helgi Jóhannesson