banner

Dómaranámskeið í kumite

Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kumite föstudaginn 17. október næstkomandi kl.19:00, í Veitingasal Breiðabliks, Smáranum, Kópavogi. Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Námskeiðið verður í formi fyrirlesturs þar sem farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, en fyrirlesturinn tekur um 2 klst. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram sunnudaginn 19. október á meðan Íslandsmót unglinga í kumite stendur yfir. Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef http://kai.is/keppnisreglur-wkf/
Vinsamlegast skráið þátttakendur hér; Skráningarform
Þess má geta að öllum er frjálst að koma á fyrirlesturinn en hér er útdráttur úr reglum um Karatedómara sem sjá má á vef KAÍ.
2. gr. Til að öðlast réttindi sem Karatedómari þarf viðkomandi að hafa 1. Dan gráðu eða hærri og að vera orðinn 22 ára og ekki eldri en 65 ára.
Dómari í kata og kumite þarf að vera með 1. kyu gráðu eða hærri og orðinn 18 ára.
Meðdómari í kata og kumite þarf að vera með 3. kyu gráðu eða hærri og orðinn 16 ára.

About Helgi Jóhannesson