banner

Yfirburðarsigur Fylkis á ÍM unglinga í kumite

KAI_IM_unglinga_kumite_2015Í dag fór fram Íslandsmeistaramót unglinga í kumite Í Fylkissetrinu, Norðlingarholti, í umsjón Karatedeildar Fylkis. Karatedeild Fylkis átti mjög góðan dag á unglingamótinu eins og undanfarin ár og stóð uppi sem sigurvegari 9 árið í röð og er því Íslandsmeistari félaga í kumite unglinga.  Góð þátttaka var á mótinu, um 60 keppendur frá 7 félögum frá aldrinum 12-17 ára.  Margar mjög snarpar viðureignir sáust í dag og hápunkturinn var í elstu aldursflokki stúlkna þegar landsliðskonurnar Katrín Ingunn Björnsdóttir, úr Fylki, og Arna Katrín Kristinsdóttir, úr Breiðablik, áttust við.  Einnig var mjög snörp og góð viðureign í yngsta aldursflokki stúlkna þar sem liðsfélagarnir úr Fylki áttust við, þær Embla Kjartansdóttir og Lóa Björg Finnsdóttir. Þegar heildarstigin voru talin saman, þá stóð karatedeild Fylkis uppi sem sigurvegari með 31 stig, Þórshamar urðu í 2.sæti með 7 stig og Breiðablik, Fjölnir og ÍR í 3-5.sæti með 3 stig. Mótsstjóri var María Baldursdóttir og yfirdómari var Helgi Jóhannesson.

Íslandsmeistarar í dag urðu;
Kumite drengja 12 ára, Samuel Josh, Fylkir
Kumite drengja 13 ára, Hrannar Ingi Arnarsson, Fylkir
Kumite pilta 14 og 15 ára, Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Fylkir
Kumite pilta 16 og 17 ára, Þorsteinn Freygarðsson, Fylkir
Kumite telpna 12 og 13 ára, Embla Kjartansdóttir , Fylkir
Kumite stúlkna 14 og 15 ára, Iveta Ivanova, Fylkir
Kumite stúlkna 16 og 17 ára, Katrín Ingunn Björnsdóttir, Fylkir

Á meðfylgjandi mynd má sjá Íslandsmeistarana frá því í dag, efri röð frá vinstri;  Samuel, Embla, Hrannar, Iveta, Þorstein, Katrínu og Ágúst.

Heildarúrslitin má svo sjá hér: Úrslit IM unglinga kumite 2015.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá svo alla verðlaunahafa á mótinu í dag.

KAI_IM_unglinga_kumite_2015_allir

About Helgi Jóhannesson