banner

Íslandsmeistaramót í kumite – dagskrá

Karatesamband_Islands_logo_webLaugardaginn 14.nóvember fer fram Íslandsmeistaramót fullorðinna í kumite (bardagahluta í karate). Mótið verður haldið í Fylkissetrinu, Norðlingaholti í umsjón karatedeildar Fylkis. Mótið hefst með undanúrslitum kl.10 með einstaklingsflokkum, liðakeppni verður um kl.11:50 og er áætlað að undanúrslit verði lokið um kl.12:05. Úrslit hefjast kl. 12:15 og verður þeim lokið kl.12:45.
Dagskrá Undanúrslit
10:00  Einstaklingsflokkar karla og kvenna
11:15  Opnir flokkar karla og kvenna
11:50  Liðakeppni karla (engin liðakeppni kvenna í ár)
Úrslit
12:15  Kumite kvenna, -61 kg.
12:20  Kumite kvenna, +61
12:25  Kumite karla -67 kg
12:31  Kumite karla -75 kg
12:37  Kumite karla, opinn flokkur.
12:45  Verðlaunaafhending
13:00  Mótslok

About Helgi Jóhannesson