María Helga og Aron Anh eru karatefólk ársins 2016
Stjórn Karatesambands Íslands hefur útnefnt eftirfarandi karatekonu og karatemann ársins 2016
Karatekona ársins: María Helga Guðmundsdóttir, Karatefélagið Þórshamar
María Helga hefur verið sigursæl karatekona síðustu ár, keppir bæði í kata og kumite. Náði þeim frábæra árangri að vinna til silfurverðlauna á Norðurlandameistaramóti auk þess að vera Bikarmeistari kvenna. María Helga hefur keppt erlendis með landsliðinu og náð góðum árangri, verið m.a. í verðlaunasætum á erlendum mótum eins og sést á árangri hennar.
María Helga er núna í 223.sæti á heimslista Alþjóða Karatesambandsins (WKF) í kumite kvenna -55kg af 438 skráðum keppendum.
Helstu afrek Maríu Helgu á árinu 2016 voru;
- Bikarmeistari Kvenna 2016
- Silfur í kumite kvenna -55kg, Norðurlandameistaramót
- Íslandsmeistari í -61kg flokki
- Brons á Íslandsmeistaramóti í kumite opnum flokki kvenna
- Brons á Íslandsmeistaramóti í kata kvenna
- Gull í kumite -55kg, Swedish Karate open
- Brons í kata kvenna, Swedish Karate open
- Silfur í -61 kg, Czezch Karate Open Cup
- Brons í opnum flokki, Czezch Karate Open Cup
- Gull í liðakeppni, Czezch Karate Open Cup
- Brons í kata kvenna, RIG
María Helga er því verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.
Karatemaður ársins: Aron Anh Ky Huynh, Karatedeild ÍR
Aron Anh er einn efnilegasti karatemaður sem hefur komið fram síðustu ár, er jafnvígur á keppni í kata og kumite. Aron Anh er núverandi Bikarmeistari á sínu fyrsta keppnisári í fullorðinsflokki auk þess að vera Íslandsmeistari unglinga bæði í kata og kumite. Aron Anh er einnig bikarmeistari unglinga í kata ásamt því að vera í verðlaunasætum bæði á unglinga og fullorðinsmótum í kata og kumite.
Helstu afrek Aron Anh á árinu 2016 voru;
- Bikarmeistari karla 2016
- Íslandsmeistari í Kumite pilta 16-17 ára -68kg
- Íslandsmeistari í kata pilta 16-17 ára
- Bushidobikarmeistari í Kata 16-17 ára unglinga
- Silfur á Íslandsmeistaramóti í kumite -67kg flokki
- Brons á Íslandsmeistaramóti í kata karla
- 3ja sæti í Bushidobikarmótaröð í Kumite pilta 16 og 17 ára
- Brons á Íslandsmeistaramóti í hópkata táninga 16 og 17 ára
- Gull í Kata Junior karla, RIG
Aron Anh er því verðugur fulltrúi karateíþróttarinnar.