Nýjar keppnisreglur WKF taka gildi 1.janúar 2017
Ný útgáfa af keppnisreglum WKF munu taka gildi 1.janúar 2017 og gilda því fyrir öll mót eftir áramótin. Í meðfylgjandi skjali má sjá yfirlit yfir helstu breytingar ásamt því í hvaða kafla þær koma fram.
Við hvetjum alla til að kynna sér þessar breytingar, en ný útgáfa á ensku af keppnisreglum WKF er að finna á http://kai.is/keppnisreglur-wkf/
PDF skjal með breytingum; Yfirlit yfir breytingar á keppnisreglum WKF sem taka gildi 1 janúar 2017
Hér er svo textinn yfir breytingarnar;
Yfirlit yfir breytingar á keppnisreglum WKF sem taka gildi 1 janúar 2017
Þetta er létt samantekt (lausleg þýðing), ef misræmi er á milli yfirlits og wkf reglna, gilda reglurnar.
Nr | Breyting | Regla nr. |
KUMITE REGLUR | ||
1 | Keppendur mega ekki vera með belti sem nær neðar en 3/4 af lærinu. | Art.2 – contestants nr.1 |
2 | Keppendur mega vera með 2 teygjur í hárinu (í tagli). | Art.2 – contestanst nr.6 |
3 | Þjálfarar mega vera með höfuðfat trúarlegs eðlis, sbr. það sem dómara mega vera með. | Art.2 – coaches |
4 | Nánar skilgreint, að keppandi sem fær kiken, fær ekki að keppa meira í þeim flokki. | Art.3 – nr.3 |
5 | Atoshi Baraku er núna 15 sekúndur. | Art.5 – nr.3 |
6 | Ný regla kynnt, „fyrsta stig skorað“ (SENSHU). Ef stig eru jöfn í enda viðureignar, vinnur sá keppandi sem hefur skorað fyrsta stig. | Art.7 |
7 | Flokkur 2 bannað athæfi fyrir Aðgerðarleysi (passivity) – Atoshi Baraku breytt í 15 sekúndur. | Art.8 – C2 nr.5 |
8 | Nánari skilgreining á að keppandi sem er úrskurðaður Kiken, getur ekki tekið þátt í flokknum (eins og í reglu nr.3). | Art.10 |
9 | Þegar keppandi fellur (er niðri), þá á Aðaldómari að kalla strax til lækni og hefja strax talningu upp á 10 með því að gefa talningu til kynna með fingrum. Tímavörður stöðvar klukkuna á hefðbundin máta. | Art.10 – nr.7 |
10 | Skilgreining á valdi Aðaldómara til að fjarlægja þjálfara eða hvern annan af keppnissvæði, sem ekki hegðar sér eða veldur truflunum á meðan viðureign á sér stað. | Art.12 – Referees nr.15 og expl.nr.X |
11 | Keppendur eiga að hefja viðureign á miðri skilgreindri dýnu (sem er snúið við). | Art.13 – nr.2 |
KATA REGLUR | ||
12 | Dýnum sem snúið er við í kumiteviðureign, skal snúið aftur við fyrir kata, svo völlurinn sé samlita. | Art.1 – nr.3 |
13 | Nánari skilgreining á Kiken, keppandi/lið sem mætir ekki og fær Kiken, getur ekki keppt frekar í viðkomandi flokki. (eins og regla nr.3 og nr.10 í kumitehlutanum). | Art.3 – nr.7 |
14 | Að nota „leg scissor“ tækni í átt að hálsi, í bunkai, er bætt við sem ástæðu fyrir frávísun frá keppni. | Art.5 – vísað frá keppni nr.7 |
15 | Að trufla dómara með því að hreyfa sig um á keppnissvæði meðan hinn keppandinn framkvæmir kata, er bætt við sem villu. | Art.5 – villur nr.g) |
16 | Nánari skilgreining á Kiken, að keppandi er vísað frá frekari keppni í viðkomandi flokki. Ásamt skýringu á því hvernig Aðaldómari sýnir merki um Kiken. | Art.6 – nr.6 og nr.7 |
VIÐAUKAR | ||
17 | Atoshi Baraku er breytt í 15 sekúndur (Kumite reglur nr.5). | App.1 – Orðaforði |
18 | Orðinu „SENSHU“ fyrir „fyrsta stig skorað“ bætt við. | App.1 – Orðaforði |
19 | Nánari skilgreining á því hvernig Kiken er gefið til kynna. | App.1 – Orðaforði |
20 | Nánari skilgreining á refsingu sem getur verið gefin fyrir að gera sér upp meiðsli þegar stiggefandi tækni á sér stað. Orðin „Að gera sér upp meiðsli eða ýkja þau“ er breytt yfir í „Að gera sér upp meiðsli“ (því að ef tækninni er vel stjórnað, þá eru engin meiðsli til að ýkja). | App.3 |