banner

Dómaranámskeið í kumite

Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kumite fimmtudaginn 17.janúar næstkomandi kl. 18:00, í Ráðstefnusal-C í ÍSÍ, Laugardal.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Námskeiðið verður í formi fyrirlesturs þar sem farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, en fyrirlesturinn tekur um 2 klst. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram föstudaginn 18.janúar á meðan Íslandsmót unglinga í kumite stendur yfir.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir nýjar keppnisreglur WKF 2019.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/)..

Vinsamlegast skráið mætingu: https://goo.gl/forms/zlThxFybf7dDkpGk1.

About Reinhard Reinhardsson