Frábær árangur á Ishöj karate Cup
Íslenskt landsliðsfólk í karate náði góðum árangri á sterku móti í Kaupmannahöfn um helgina. Ishöj Cup er vinsælt mót en þar keppa jafnan margir af þeim bestu í norðurhluta Evrópu.
Hin 18 ára Iveta Ivanova komst í úrslit í -55 kg flokki í bæði U-21 flokki og í fullorðinsflokki en í báðum úrslitum mætti hún Rebeccu Craig frá Skotlandi, en þær tvær voru í sérflokki í kvennaflokki á mótinu. Í U-21 hafði Iveta betur 5-4 og fékk því gull en hún þurfti að gera sér silfur að góðu í fullorðinsflokki þar sem hún tapaði 12-7 gegn hinni skosku.
Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson komst einnig í úrslit á mótinu er hann vann undanriðil sinn í opnum þyngdarflokki í fullorðinsflokki. Í úrslitunum keppti Ágúst við hinn sænska Jimmy Haag en þar hafði Svíinn betur 1-0. Ágúst er einnig nýorðinn 18 ára og því nýkominn með aldur til þátttöku í fullorðinsflokki.
Þá fór Ólafur Engilbert Árnason í úrslit í -75 kg flokki. Hann mætti þar Norðmanninum Christian Ole Hansen, en rétt eins og Ágúst tapaði hann 1-0 í úrslitum og hlaut silfur.
Máni Karl Guðmundsson fékk bronsverðlaun í -67 kg flokki U-21, og Samuel Josh Ramos fékk brons í -63 kg flokki og í opnum flokki Cadet. Þá kepptu þeir Máni, Ólafur og Ágúst í liðaflokki og lentu í 3. sæti.