Katalandsliðið á tvö mót um helgina
A-landsliðið í kata verður á faraldsfæti um helgina og keppir á opnu bikarmótunum Gothenburg Open í Gautaborg, Svíþjóð, og Gladsaxe Cup í Kaupmannahöfn í Danmörku.
Keppendahópinn skipa:
- Eydís Magnea Friðriksdóttir, Fjölni, kadett (14-15 ára)
- Freyja Stígsdóttir, Þórshamri, junior (16-17 ára) og senior (16+ ára)
- Oddný Þórarinsdóttir, Aftureldingu, kadett (14-15 ára)
- Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðabliki, senior (16+ ára)
- Tómas Pálmar Tómasson, Breiðabliki, kadett (14-15 ára)
- Þórður Jökull Henrysson, Aftureldingu, junior (16-17 ára) og senior (16+ ára)
Með í för er Helgi Jóhannesson, landsliðsþjálfari í kata.