banner

Sjö landsliðsmenn á leið á Evrópumeistaramót unglinga og U21

Helgina 7-9.febrúar næstkomandi fer fram Evrópumeistararamót unglinga og U21 í Budapest, Ungverjalandi. Ísland sendir sjö keppendur til leiks í öllum þremur aldursflokkunum sem keppt er í á mótinu, Cadet 14-15 ára, Junior 16-17 ára og U21 (18-20 ára). Mótið hefst föstudaginn 7.febrúar og lýkur sunnudaginn 9.febrúar, þar sem keppt er í undanriðlum og úrslitum í einstökum flokkum á sama degi. Á föstudeginum er keppt í kata í öllum aldursflokkum og kumite cadet. Á laugardeginum er keppt í kumite junior og á sunnudeginum er keppt í kumite U21. Um 1.150 keppendur eru skráðir á mótið frá 52 löndum, en einungis má skrá 1 keppanda frá hverju landi í hvern keppnisflokk, því er ljóst að Evrópumeistaramótið í ár er mjög sterkt.

Landslið Íslands á EM Junior og U21 skipa;
Aron Anh Ky Huynh, Kata U21 (39 keppendur)
Freyja Stígsdóttir, Kata junior (32 keppendur)
Hugi Halldórsson, Kumite cadet -70kg (33 keppendur)
Oddný Þórarinsdóttir, Kata cadet (30 keppendur)
Samuel Josh Ramos, Kumite junior -61kg (39 keppendur)
Viktoría Ingólfsdóttir, Kumite cadet +54kg (36 keppendur)
Þórður Jökull Henrysson, Kata Junior (35 keppendur)

Allt okkar fólk keppir á föstudeginum fyrir utan Samuel sem keppir á laugardeginum. Með þeim í för er Ingólfur Snorrason landsliðsþjálfari í kumite, María Helga Guðmundsdóttir þjálfari í kata, Helgi Jóhannesson EKF Dómari og Reinhard Reinhardsson formaður Karatesambands Íslands.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Landsliðshópinn, frá vinstri, Helgi, María, Aron Anh, Freyja, Oddný, Samuel, Þórður, Viktoría, Hugi og Ingólfur.

About Reinhard Reinhardsson