banner

33. Karateþing

33. Karateþing fór fram sunnudaginn 16. febrúar 2020 í E-sal Íþróttamiðstöðinni, Laugardal.

20 þingfulltrúar frá 7 aððildarfélögum sóttu þingið. Hafsteinn Pálsson, frá framkvæmdastjórn ÍSÍ, var gestur þingsins og ávarpaði það.
Færði hann kveðjur frá Stjórn og forseta ÍSÍ og óskaði þingheim velfarnaðar í þingstörfum.

Helgi Jóhannesson var heiðraður með gullmerki KAÍ fyrir framlag hans til karateíþróttarinnar og störf hans að dómgæslu, en hann á um þessar mundir 20 ára afmæli sem Evrópudómari í karate.

Helgi Jóhannesson og Reinharð formaður KAÍ

Ekki var um átakaþing að ræða en nokkur umræða varð um framkomu þjálfara á mótum, skort á réttindadómurum og viðvarandi skort á starfsmönnum frá karatefélögunum á mótum á vegum sambandsins. Uppfærð Afreksstefan til 4 ára var einnig samþykkt.

Reinharð Reinharðsson var endurkjörinn formaður sambandsins og einn nýr stjórnarmaður var kosinn í aðalstjórn, Rut Guðbrandsdóttir, tveir nýir varamenn voru kostnir í stjórn, þeir Hafþór Sæmundsson og Sigþór Samúelsson.

Ný stjórn Karatesambandsins: Hafþór, Magnea, Rut, María, Reinharð, Ævar og Sigþór. Á myndina vantar Elías Guðna Guðnason.

About Reinhard Reinhardsson