banner

ÍM í kata í Fylkishöllinni 4. október kl. 10

Íslandsmeistaramótið í kata fullorðinna 2020 fer fram sunnudaginn 4. október í Fylkishöllinni og hefst kl 10.00.

Mótið átti að fara fram í mars síðastliðnum en var frestað vegna samkomubanns stjórnvalda.

Um 20 keppendur eru skráðir til leiks auk 7 hópkata liða.

Keppt verður í kata karla og kvenna auk liðakeppni í hópkata.

Einnig verður í fyrsta sinn keppt í U18 ára flokki karla og kvenna á mótinu. Er það gert til að einfalda smitvarnir í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.

Úrslit í liðakeppni í hópkata fer fram milli 12.30 og 13.00 en úrslitaviðureignir í einstaklingflokkum hefjast kl 13.30.

Mótslok áætluð kl. 14.00

About Reinhard Reinhardsson