banner

Dómaranámskeið í kata

Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kata föstudaginn 14. Maí næstkomandi kl. 18:00-21:00, í Veitingasal Breiðabliks í Smáranum Kópavogi.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Fyrst verður fyrirlestur, svo sýnt video af kata (raundæmi), í framhaldi af því skriflegt próf og verklegt próf (notaðar verða myndbandsupptökur).

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir kata hlutann í keppnisreglum WKF 1.1.2020. Vakin er athygli á því að keppnisreglur í kata hafa breyst mjög mikið frá fyrri útgáfum af keppnisreglum.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn. Keppnisreglur og prófspurningar til grundvallar á skriflegu prófi er hægt að nálgast á vef KAÍ (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/). Kata spurningar 2020 eru komnar inn á vefinn!

Nauðsynlegt er að skrá mætingu.

Skráning á námskeiðið: https://forms.gle/38Wf5L7avcNKc1sg8

About Reinhard Reinhardsson