banner

Dómaranámskeið í kumite

Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kumite fimmtudaginn 30.september næstkomandi kl. 18:00, í Ráðstefnusal-E í ÍSÍ, Laugardal.

Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, fyrirlesturinn tekur um 3 klst. Fyrirlesturinn er í formi glærusýningar og svo video dæmi af keppnum þar sem keppnisreglur eru útskýrðar. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram sunnudaginn 3.október á meðan GrandPrix-Bikarmót í kumite stendur yfir.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir nýjar keppnisreglur WKF 2020.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/)..

Vinsamlegast skráið mætingu.

Linkur á skráningarskjal: https://forms.gle/jgrZVDZn741y18uY6

About Reinhard Reinhardsson