KAI dómaranámskeið í kumite 2022
Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kumite fimmtudaginn 24.febrúar næstkomandi kl. 18:00, í Ráðstefnusal-D í ÍSÍ, Laugardal.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, fyrirlesturinn tekur um 3 klst. Fyrirlesturinn er í formi glærusýningar og svo video dæmi af keppnum þar sem keppnisreglur eru útskýrðar. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram laugardaginn 26.febrúar á meðan GrandPrix-Bikarmót í kumite stendur yfir.
Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir nýjar keppnisreglur WKF 2020.
Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/)..
Vinsamlegast skráið mætingu, https://forms.gle/PRJxHfGv9u6tZXTk8