banner

Íslandsmeistaramótið í kata 2022

Íslandsmeistaramótið í kata 2022 fór fram sunnudaginn 20. mars í Íþróttahúsi Hagaskóla og hófst kl. 10.00.

UM 25 keppendur frá 6 karatefélögum og -deildum voru skráðir til leiks auk 7 hópkataliða.

Þórður Jökull Henrysson, Aftureldingau, varð Íslandsmeistari í kata karla í 3ja sinn.
Móey María Sigþórsdóttir McClure, Breiðablik, varð nýr Íslandsmeistari í kata kvenna.

Hópkatalið Karatefélags Reykjavíkur, með þá Huga, Nökkva og Björn Breka innanborðs, urðu Íslandsmeistarar í Hópkata karla.

Hópkatalið Breiðabliks, skipað Móey, Guðbjörgu og Natalíu, varð sigurveigarar í hópkata kvenna.

Sigurveigarar í stigakeppni félagsliða varð Breiðablik með 20 stig.

Mótsstjóri var María Jensen og yfirdómari Helgi Jóhannesson.

Íslandsmeistarar í kata

Móey og Þórður

Tómas Pálmar, Þórður, Hugi og Tómas Aron

Sigurveigarar í hópkata karla

Heildarúrslit

About Reinhard Reinhardsson