banner

KAÍ dómaranámskeið í Kumite 2023

Karatesamband Íslands stendur fyrir dómaranámskeiði í Kumite fimmtudaginn 16. nóvember næstkomandi kl. 18:00 í fyrirlestrarsal C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Reykjavík.
Kristján Ó. Davíðsson, NKF Referee, sér um námskeiðið. Farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, fyrirlesturinn tekur um 3 klst. Fyrirlesturinn er í formi glærusýningar og svo video dæmi af keppnum þar sem keppnisreglur eru útskýrðar. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram laugardaginn 18.nóvember á meðan GrandPrix í kumite stendur yfir.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).

Skráningarform fyrir dómaranámskeiðið:

https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSexlCSVrXIGBDugByhl2nrNBjL9gb3o9ppi0MVXze-pCaAcMQ/viewform?vc=0&c=0&w=1&flr=0&usp=mail_form_link

About Reinhard Reinhardsson