banner

37. Karateþing

37. Karateþing fór fram sunnudaginn 18. febrúar í fundarsal B og C á 3ju hæð í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

23 þingfulltrúar frá 7 karatefélögum og -deildum tóku þátt í þingstörfum auk stjórnar sambandsins.

Þingforseti var kosinn Valdimar Leó Friðriksson, meðstjórnandi í framkvæmdarstjórnar ÍSÍ og þingritari Hafþór Sæmundsson, stjórnarmaður KAÍ.

Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, var gestur á þinginu og bar kveðju frá framkvæmdastjórninni. Ræddi hann um nýjar svæðisskrifstofum ÍSÍ og hlutverk þeirra í að efla starf héraðssambanda og félaga úti á landinu. Úthlutun úr Afrekssjóð og deilingu takmarkaðs fjármagns milli íþróttagreina.

María Jensen var sæmd silfurmerki KAÍ fyrir störf í þágu íþróttarinnar en hún hefur verið gjaldkeri stjórnar í nærri tíu ár auk þessa að vera formaður mótanefndar KAÍ síðan 2015. Hún hefur einnig verið fararstjóri í keppnisferðum á Norðurlandamót og Evrópumót smáþjóða.
Stjórnin hafði ákveðið að heiðra tvo félaga en annar þeirra forfallaðist og mun fá viðurkenningu frá sambandinu á næsta Íslandsmeistaramóti.


Reinharð og María Jensen

Skýrsla stjórnar fyrir árið 2023 og reikningar sambandsins fyrir 2023 voru samþykktir samhljóma.

Afreksstefna fyrir árin 2024-2027 var samþykkt einróma og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 með lítillegum breytingum frá fjárlaganefnd.

Lögð var fram tillaga um að öll karatefélög -deildir yrðu að skrá starfsmann í mótanefnd til að öðlast keppnisrétt á mótum sambandsins. Tillagan var samþykkt eftir nokkrar umræður um hana. Stjórnin mun uppfæra reglur um Íslandsmót í samræmi við hana.

Nokkur umræða varð undir liðnum önnur mál um þátttöku útlendinga á Íslandsmeistaramótum, þ.e. flóttamenn og hælisleitendur.
Rætt um hlut kvenna í landsliðum sambandsins. Hvatt til að para-karate yrði gert sýnilegt, ef það mætti efla þátttöku fatlaðra.

Reinharð Reinharðsson, formaður KAÍ, gaf kost á sér til áframhaldandi formennsku og var sjálfkjörinn.

Stjórn og vara-stjórn gaf öll kost á sér til áframhaldandi setu og var sjálfkjörin.

About Reinhard Reinhardsson