Tveir nýir alþjóðlegir dómarar
Tveir íslenskir dómarara fóru í alþjóðlegt dómarapróf sem haldið var fyrir Evrópumeistaramót Smáþjóða í Monaco 1. nóvember.
Aron Bjarkason jók við réttindi sín úr SSEKF judge í SSEKF referee í kata og kumite.
Aron Breki Heiðarsson tók sín fyrstu alþjóðlegu dómararéttindi, SSEKF judge í kata og kumite.
Óskum við þeim til hamingju með áfangann.