KAÍ dómaranámskeið í Kata 2024
Karatesamband Íslands stendur fyrir dómaranámskeiði í Kata fimmtudaginn 28. nóvember næstkomandi kl. 18:00 í fyrirlestrarsal C í íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Reykjavík.
Kristján Ó. Davíðsson, NKF Referee, sér um námskeiðið. Farið verður yfir keppnisreglur WKF Katahlutann, fyrirlesturinn tekur um 3 klst. Fyrirlesturinn er í formi glærusýningar þar sem keppnisreglur eru útskýrðar. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram laugardaginn 30. nóvember á meðan Grand Prix mót stendur yfir.
Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi.
Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar á ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).
Vinsamlegast skráið mætingu, hvort sem það er einungis á fyrirlestur eða þá í próf.