Fyrst verðlaun Íslendings á Evrópumeistaramóti í karate
Fyrstu verðlaun Íslendings á Evrópumeistaramóti í karate vann Hugi Halldórsson þegar hann náði í bronsverðlaun í Kumite karla U21 í -84kg flokki.
Evrópumeistaramót ungmenna 14-20 ára í karate fór fram dagana 5.-8. febrúar í Limassol, Kýpur.
Fimm íslenskir keppendur tóku þátt í mótinu.
Bestum árangri náði Hugi Halldórsson þegar hann vann brons í sínum flokki í kumite.
Í fyrstu umferð vann hann Nihad Karimzada frá Azerbaijan 2-1.
Hann tapaði fyrir Sinan Paljevac frá Bosníu-Hersegoniniu 1-6 en sá komst í úrslit flokksins og uppskar silfur verðlaunin.
Hugi fékk því uppreisn og keppti fyrst við Lettann Roberts Puke og sigraði hann 6-0.
Í næstu umferð keppti hann við Eistann Saveli Bolotskihh og vann hann 5-3.
Þá var komið að brons viðureigninni þar sem Hugi sigraði Ítalan Gabriele Pezzotti afgerandi 8-0 og bronsið hans.
Hugi Halldórsson með brons verðlaunin
Næst bestum árangri náði Aron Builiam Jónsson, sem hafnaði í 7-8 sæti í flokki 16-17 ára í kumite karla -68kg.
Aron tapaði í fyrstu umferð fyrir Úkraínumanninum Serhii Stankov 1-9 sem komst í úrslit.
Aron fékk því uppreisn og möguleika á að keppa um brons verðlaun.
Í fyrstu viðureign keppti hann við Albanann Endri Rustemi og sigraði hann 5-0.
Næst keppti hann við Rúmenann Stefan Crivat og vann hann 4-2.
Þá var komið að Georgíumanninum Nikoloz Abuladze en fyrir honum tapaði Aron 0-5 og hann hafnaði því í 7-8 sæti í sínum flokki.
Aðrir keppendur í ferðinni voru Óskar Ingi Agnesar Gunnarsson, Embla Rebekka Halldórsdóttir og Prince James Carl Buenviaje Caamic.
Með í ferðinni voru landsliðsþjálfararnir í kumite, Ruslans Sadikovs og í kata, Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Fararstjóri var Elías Guðni Guðnason.

Ruslan og Hugi
Hópurinn við upphaf mótsins


