banner

39. Karateþing

39. Karateþing fór fram sunnudaginn 15. apríl og var haldið í fundarsölum ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardag.
Um 40 þingfulltrúar sóttu þingið fra 10 karatefélögum og -deildum.

Reinharð Reinharðsson lét af störfum sem formaður sambandsins eftir 20 ár við stjórnvölinn.

Nýr formaður tók við á þinginu, Ronja Halldórsdóttir og er hún fyrst kvenna til að gegna því hlutverki hjá Karatesambandinu.

Willem Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var gestur á þinginu og flutti stutta ræðu um framtíðarstarf ÍSÍ.
Þá veitti hann Reinharð Heiðurskross ÍSÍ fyrir langt og farsælt starf fyrir karateíþróttina.

Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu og var þeim vísað til nýrrar stjórnar til efnislegrar meðferðar eftir umræður í þingnefndum.
Fjárhagsáætlun 2026 og Afreksstefna KAÍ 2026-2029 var samþykkt á þinginu með lítilsháttar breytingum.

Einn nýr aðalmaður var kosinn í stjórn sambandsins, Þorsteinn Yngvi Guðmundsson.
Þrír nýir varamenn voru einnig kosnir á þinginu. Þau Þórður Jökull Henrysson, Ísold Klara Klörudóttir og Willem Verheul.

Þing forseti var Valdimar Leó Friðriksson og þing ritari Anna María Þórðardóttir.

Ný stjórn KAÍ: Gaukur, Þorsteinn, Ronja, Ísold, Sigþór, Þórður og Willem. Á myndina vantar Gunnlaug.

Willem og Reinharð með Heiðurskross ÍSÍ.

About Reinhard Reinhardsson