banner

Íslandsmeistaramót fullorðinna 2026

Sunnudaginn 22. mars nk. fer fram Íslandsmeistaramót fullorðinna í Kata og Kumite. Auk þess verður keppt á nýju móti, Íslandsmeistaramóti Masters í Kata, en það er mót fyrir 35 ára og eldri.

Á þessu nýja móti verður keppt í eftirfarandi fimm flokkum:

  • Kata kvenna 35 til 49 ára.
  • Kata karla 35 til 49 ára.
  • Kata kvenna 50 ára og eldri.
  • Kata karla 50 ára og eldri.
  • Hópkata (blönduð eða óblönduð 3ja manna sveit).

Mótin fara fram í Íþróttahúsi HÍ við Háteigsveg og byrjað verður á Kata fullorðinna kl. 9:30 að því loknu verður keppt í Kumite fullorðinna og að lokum Kata Masters. Gert er ráð fyrir að Kumite byrji um kl. 13:00 og Masters að því loknu eða um kl. 16:30.

Húsið opnar kl. 8:00 og uppsetning á mótinu á sama tíma, það væri því mjög gott að karatefélögin og deildir aðstoði við uppsetningu á keppnis- og æfingavelli um morguninn og starfsmenn sem skráðir verða á mótið mæti tímalega.

Opið er fyrir skráningu á mótin til miðnættis miðvikudaginn 18. mars.

Nánari upplýsingar koma síðar eða eftir að skráningu líkur. Þá mun nákvæmari tímar liggja fyrir en ofangreindir tímar miðað við fjölda keppenda á fyrri mótum.

About Gaukur Garðarsson