Íslandsmeistaramót fullorðinna í kata 2026
Íslandsmeistaramót fullorðinna í kata fór fram sunnudaginn 22. mars í Íþróttahúsi HÍ við Háteigsveg og hófst kl. 9:30.
28 keppendur frá 8 karatefélögum og -deildum voru skráðir til leiks auk 2 hópkataliða í karlaflokki.
Yfirdómari var Aron Breki Heiðarsson og mótsstjóri Gaukur Garðarsson.
Íslandsmeistari í kata karla: Þórður Jökull Henrysson, Íþróttafélag Reykjavíkur.
Íslandsmeistari í kata kvenna: Una Borg Garðarsdóttir, Breiðablik.
Íslandsmeistarar í hópkata karla: Lið 1 frá Karatefélagi Reykjavíkur.
Karatefélag Reykjavíkur sigraði í stigakeppni félaga með 16 stig, í öðru sæti varð Íþróttafélag Reykjavíkur með 6 stig og í þriðja sæti varð Breiðablik með 4 stig.

Sigurvegarar í Kata 2026