Edda og Katrín í 9.sæti á EM
Á öðrum degi Evrópumeistaramóti unglinga og U21 í karate sem fer fram í Limassol, Kýpur, átti Ísland 3 keppendur. Edda Kristín Óttarsdóttir keppti í kumite kvenna Junior -59kg, Katrín Ingunn Björnsdóttir keppti í kumite kvenna Junior +59kg og Máni Karl Guðmundsson sem keppti í kumite Junior -61kg.
Edda Kristín lenti á móti Gwendoline Philippe frá Frakklandi í fyrstu umferð, sú franska vann 3-0 sem og næstu 4 bardaga og vann sigur að lokum og er því Evrópumeistari í kumite junior -59kg. Edda Kristín fékk því uppreisn og rétt til að keppa um 3ja sætið. Edda Kristín lenti á móti Tamari Turmanidze í fyrstu viðureign, Tamari vann viðureignina 2-0 og því endaði Edda Kristín í 9.sæti í sínum flokki.
Máni Karl lenti á móti Stefan Ilic frá Bosníu-Hersegovina, Stefan vann viðureignina 3-0, en þar sem Stefan datt úr í næstu umferð þá átti Máni Karl ekki möguleika á uppreisn.
Katrín Ingunn fékk Lea Avazeri frá Frakklandi í fyrstu umferð. Bardaginn var mjög jafn og endaði 0-0, þeirri frönsku var svo dæmdur sigur eftir dómaraúrskurð og fór því í 2.umferð. Lea vann einnig næstu 4 bardaga, endaði sem Evrópumeistari í kumite junior +59kg, því fékk Katrín Ingunn uppreisn. Í fyrstu viðureign í uppreisn mætti Katrín Ingunn Lucija Lesjak frá Króatíu. Lucija reyndist ofjarl Katrínar því hún lagði hana 7-0 og endaði Katrín Ingunn í 9.sæti í sínum flokki.
Á morgun, sunnudegi, mun svo Ólafur Engilbert keppa í kumite karla U21 -75kg.
Smellið á myndina til að sjá lokastöðu í kumite junior -59kg
Smellið á myndina til að sjá lokastöðu í kumite junior +59kg