Dómaranámskeiði í kumite 5. október
Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kumite föstudaginn 5.október næstkomandi kl. 18:00, í fundarsal Breiðabliks, Smáranum, Kópavogi.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Námskeiðið verður í formi fyrirlesturs þar sem farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, en fyrirlesturinn tekur um 2 klst. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram laugardaginn 6.október á meðan Íslandsmót unglinga í kumite stendur yfir.
Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir nýjar keppnisreglur WKF 2018.
Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).
Vinsamlegast skráið mætingu.
https://goo.gl/forms/fJk8BpAuZAGNdEK23