banner

KAÍ dómaranámskeið í Kumite 2024

Karatesamband Íslands stendur fyrir dómaranámskeiði í Kumite miðvikudaginn 6. nóvember næstkomandi kl. 18:00 í fyrirlestrarsal C í íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Reykjavík.

Kristján Ó. Davíðsson, NKF Referee, sér um námskeiðið. Farið verður yfir keppnisreglur WKF kumitehlutann, fyrirlesturinn tekur um 3 klst. Fyrirlesturinn er í formi glærusýningar og svo video dæmi af keppnum þar sem keppnisreglur eru útskýrðar. Í framhaldi af honum verður haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa en verklegur hluti dómaraprófsins fer þá fram laugardaginn 9.nóvember á meðan Bikarmót og/eða UM í kumite stendur yfir.

Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).

Vinsamlegast skráið mætingu, hvort sem það er einungis á fyrirlestur eða þá í próf.
skráningu námskeiðsins https://forms.gle/GKXXZWyF9PEvXbuC8

About Reinhard Reinhardsson