Íslandsmeistaramót fullorðinna í kumite 2026
Íslandsmeistaramót fullorðinna í kumite fór fram sunnudaginn 22. mars í Íþróttahúsi HÍ við Háteigsveg og hófst kl. 13:00.
11 keppendur frá 5 karatefélögum og -deildum voru skráðir til leiks.
Yfirdómari var Aron Breki Heiðarsson og mótsstjóri var Gaukur Garðarsson.
Íslandsmeistari karla -67kg: Samuel Josh Ramos, Fylkir
Íslandsmeistari karla -75kg: Óskar Ingi Agnesar Gunnarsson, Karatefélag Reykjavíkur
Íslandsmeistari karla +84kg: Hugi Halldórsson, Karatefélag Reykjavíkur
Íslandsmeistari kvenna -61kg: Embla Rebekka Halldórsdóttir, Karatefélag Reykjavíkur
Íslandsmeistari karla opinn flokkur: Hugi Halldórsson, Karatefélag Reykjavíkur
(Mynd vantar)
Karatefélag Reykjavíkur sigraði í stigakeppni félaga með 28 stig, í öðru sæti varð Fylkir með 5 stig og Íþróttafélag Reykjavíkur í þriðja sæti með 3 stig.

