banner

Íslandsmót barna í kumite

Almennar reglur.
1. gr. Íslandsmót barna í kumite skal haldið í október eða nóvember ár hvert. Ef sérstaklega stendur á getur mótanefnd eða stjórn KAÍ breytt mótstíma frá því sem að ofan greinir. Mótanefnd er heimilt að fela einstökum félögum að halda utan um framkvæmd einstakra móta, s.s. að útvega aðstöðu, starfsfólk o.s.frv.

2. gr. Tilkynna skal dagsetningu mótsins og dagskráratriði þess með minnst 14 daga fyrirvara á heimasíður KAÍ. Þátttökutilkynningar fara í gengnum Sportdata.org og lýkur skráningu 3 virkum dögum fyrir mót, en þó getur mótanefnd ákveðið að hafa þann tíma annan.

3. gr. Þann dag sem Íslandsmótið fer fram má ekki stofna til annarrar opinberrar karatekeppni.

Starfsfólk.
4. gr. Þátttökufélagi er skylt að tilnefna starfsmenn og dómara í hlutfalli við fjölda skráðra keppenda á mót. Sjá nánar reglur um innlend mót. Hvert félag skal tilnefna að auki liðsstjóra sem aðstoðar starfsfólk mótsins við að halda reglu á mótinu.

Keppendur.
5. gr. Keppendur skulu vera komnir á mótsstað a.m.k. 30 mínútum áður en keppni hefst.

6. gr. Erlendir ríkisborgarar geta tekið þátt í mótinu eftir eins árs samfellda búsetu á landinu.

Aldursviðmið og flokkar.
7. gr. Á keppnisdegi skal keppandi hafa náð 7 ára aldri, en ekki vera orðinn 12 ára. Þá skulu keppendur hafa æft karate í 1. ár hið minnsta.

8. gr. Á Íslandsmóti barna í kumite skal keppt í eftirfarandi flokkum og skal miðað við fæðingardag á keppnisdegi.:

  • 7 ára stúlkur
  • 8 ára stúlkur
  • 9 ára stúlkur
  • 10 ára stúlkur
  • 11 ára stúlkur
  • 7 ára drengir
  • 8 ára drengir
  • 9 ára drengir
  • 10 ára drengir
  • 11 ára drengir

Keppnin.
9. gr. Dómaranefnd skal skipa aðaldómara á hverju móti. Í upphafi móts kallar aðaldómari saman aðra dómara, heldur dómarafund og skipar þá í stöður.
Fyrir upphaf hvers flokks skulu dómarar safna saman öllum keppendum. Á eins barnvænan hátt og mögulegt er skulu þeir útskýra keppnisreglurnar og svara spurningum keppenda og þjálfara.
Dómarakerfi samkvæmt viðauka 5 í WKF keppnisreglunum (kerfi fyrir 2 hornadómara) má nota á Íslandsmóti barna í kumite fyrir 7–11 ára.
Keppnissvæði skal vera 6×6m fyrir 7-9 ára en 8×8 m fyrir aðra aldursflokka.

10. gr. Eftirfarandi hlífðarbúnaður skal notast í keppni:

  • Stuðst skal við reglur WKF um hlífðarbúnað (WKF article 2: attire and protective equipment).
  • Í flokkum 7-11 ára eru höfuðhlífar og ytri brjóstvörn sem samþykkt eru af WKF skyldubúnaður.
  • Heimilt að merkja lánuð belti með nafni eða merki mótsins. Aðrar breytingar á beltamerkingum eru ekki leyfðar.

11. gr. Sérstakar keppnisreglur í kumite eru eftirfarandi:

  • Keppnistími er 60 sekúndur fyrir 7-9 ára, 90 sekúndur fyrir 10-11 ára.
  • Núgildandi WKF-reglur gilda fyrir alla aldursflokka í barnakumite með eftirfarandi undantekningum:
    Öll snerting í Jodan, þ.e. andlit, höfuð og háls/hnakka, er bönnuð. Ef handa- eða fóthlíf snertir árásarsvæði í Jodan jafnvel aðeins lítillega (light skin touch) skal beita aðvörunum/refsingum samkvæmt WKF reglum. Refsingum skal beitt mjög strangt við hvers kyns snertingu.
    Árásir á Chudan, þ.e. miðhluta líkamans (kvið, brjóst, bak og síður), skulu framkvæmdar með hámarksstjórn. Öll óhófleg líkamssnerting er bönnuð. Hugtakið létt skinnsnerting ( light skin touch) á við um Chudan. Tæknir sem notaðar eru í chudan skulu helst vera án snertingar.
    Miða skal fjarlægt fyrir stig (bæði í Chudan og Jodan) allt að 10cm frá árásarsvæði.
  • Við stigagjöf, viðvaranir, refsingar o.s.frv. skulu dómarar bæta við japönsku hugtökunum með skýrum munnlegum fyrirmælum á tungumáli sem börnin skilja.
  • Heimilt er að börn séu í örlítið of stórum karatebúningi eða með örlítið of stórar hand- eða fóthlífar, svo framarlega sem búnaðurinn skapar ekki hættu fyrir keppandann sjálfan eða aðra.

12. gr. Ef tveir eða fleiri keppendur forfallast í sama keppnisflokki og í sama hluta trés sem í voru 7 eða færri keppendur í upphafi móts má mótanefnd draga aftur í þeim flokki.

13. gr. Verðlaun skulu vera fyrir 1. sæti, verðlaunagripur eða gylltur peningur, fyrir annað sæti silfurlitaður peningur og það þriðja bronslitaður peningur. Þegar keppt er eftir uppreisnarfyrirkomulagi er ekki keppt um 3ja sæti heldur skal veita tvenn bronsverðlaun. Ef keppendur eru 3 keppa allir við alla.
Veitt eru gull, silfur og bronsverðlaun fyrir 1 til 3. sæti. Sigurvegari er sá sem hefur flesta bardagasigra. Ef tveir eða fleiri keppendur hafa sama fjölda sigra er sigurinn þess keppanda sem sigraði innbyrðisviðureign þeirra. Ef enn er jafnt sigrar sá sem hefur skorað flest stig úr bæði sigur- og tapbardögum. Verðlauna skal það félag sem fær flest stig með farandbikar til varðveislu en einnig annan minni áritaðan til eignar.

14. gr. Ef keppendur eru þrír skulu allir keppa við alla. Keppa skal til úrslita til að ákvarða fyrsta og annað sæti en tveir keppendur geta verið í þriðja sæti. Ef ekki skrá sig til leiks fleiri en einn keppandi eða lið, fellur keppni niður í þeirri grein.

15. gr. Í þeim tilfellum sem mótanefnd hefur ákveðið að hafa annan hátt á en um getur hér að ofan eða í alþjóðlegum reglum, þá skal félögunum tilkynnt það á liðsstjórafundi áður en mót hefst. Þar gefst tækifæri til að gera athugasemdir við framkvæmd móts. Liðsstjórar sem mæta á fundinn þurfa að samþykkja breytingarnar samhljóða.

16. gr. Í úrslitum eftir mót er mótanefnd skylt að birta úrslit móts með stigagjöf félaga, þannig að félag fær 3 stig fyrir 1 sæti, 2 stig fyrir 2 sæti og 1 fyrir 3 sæti.

17. gr. Að öðru leiti gilda reglur um Íslandsmeistaramót KAÍ.

Samþykkt af stjórn KAÍ 16. september 2026.