banner

Aðalheiður, Kristján og Telma verða í eldlínunni á EM

Kristján Helgi, Telma Rut og Aðalheiður keppa á EM í Ungverjalandi

Fv. Kristján Helgi, Telma Rut og Aðalheiður

Í dag héldu þrír keppendur áleiðis á Evrópumeistaramótið í karate sem fer fram í Budapest, Ungverjalandi, 9-12.maí næstkomandi. Þetta eru Aðalheiður Rósa Harðardóttir, Kristján Helgi Carrasco og Telma Rut Frímannsdóttir. Þau Kristján Helgi og Telma Rut keppa í kumite en Aðalheiður keppir í kata. Aðalheiður náði góðum árangri á síðasta heimsmeistaramóti er hún lenti í 9-16.sæti, en hún og Kristján Helgi eru nýkrýndir bikarmeistarar. Telma ætlar sér að fylgja eftir góðum árangri á Opna sænska meistaramótinu og Norðurlandamótinu þar sem hún náði í brons í kumite kvenna -61kg. Með í för er kata landsliðsþjálfarinn Magnús Kr. Eyjólfsson og Helgi Jóhannesson sem dæmir á mótinu. Undanúrslit fara fram 9-10.maí en úrslit 11-12.maí.

About Reinhard Reinhardsson