Tveir keppendur á Evrópumótið Undir 21 árs
Á föstudaginn, 7.febrúar, byrjar Evrópumeistaramót unglinga og undir 21árs í karate, en mótið fer fram í Lisbon Portúgal, mótið stendur yfir 7-9.febrúar. Ísland sendir tvo keppendur á mótið sem bæði keppa í undir 21árs flokkum, þau eru Kristján Helgi Carrasco, Víking, og Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik. Svana Katla byrjar keppni strax á föstudaginn en hún keppir í kata, Kristján Helgi mun hins vegar keppa á sunnudaginn í kumite. Þetta er fyrsta undir 21árs Evrópumótið hjá þeim báðum, en áður hafði Svana keppt á Heimsmeistaramóti fullorðinna 2012 í hópkata. Kristján Helgi keppti á Evrópumeistaramóti fullorðinna í Ungverjalandi í fyrra og á Heimsmeistaramóti undir 21árs á Spáni í nóvember síðastliðnum, þar sem hann komst í 2 umferð eftir góðan sigur á andstæðingi sínum frá Katar.
![KAI_EM_U21_feb2014](http://kai.is/wp-content/uploads/2014/02/KAI_EM_U21_feb2014-300x225.jpg)
![KAI_EM_U21_feb2014](http://kai.is/wp-content/uploads/2014/02/KAI_EM_U21_feb2014-300x225.jpg)
Á meðfylgjandi mynd má sjá þau Svönu Kötlu og Kristján Helga.