banner

Kristján Helgi og Telma Rut Bikarmeistarar 2014

KAI_Bikarmeistarar_2014_Telma_Kristjan
Í gær laugardaginn 29.mars fór fram Bikarmeistaramót Karatesambands Íslands.  Á bikarmótinu er keppt bæði í kata og kumite, þar sem stigahæsti einstaklingurinn stendur uppi sem sigurvegari, en gefin eru 10 stig fyrir 1.sæti, 8 stig fyrir 2.sæti, 6 stig fyrir 3.sæti og 3 stig fyrir 5-6.sæti. Fyrir mótið var ljóst að nýr bikarmeistari kvenna yrði krýndur þar sem meistarinn frá því í fyrra tók ekki þátt vegna meiðslna.

Góð þátttaka var á mótinu þar sem um 30 einstaklingar voru skráðir til keppni og margir af þeim kepptu bæði í kata og kumite. Flest allt landsliðsfólk okkar var mætt til leiks enda er bikarmótið liður  í undirbúningu þess fyrir Norðurlandameistaramótið sem fer fram í Riga, Eistland, 12.apríl næstkomand en Ísland sendir 20 keppendur á mótið í ár.

Fyrst var keppt í kata þar sem í kvennaflokki sigraði Svana Katla Þorsteinsdóttir stöllu sína úr Breiðablik Kristínu Magnúsdóttur en Telma Rut Frímannsdóttir, Afturelding, og María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamri, lentu í 3.sæti. Í karlaflokki sigraði Elías Snorrason, KFR, Kristján Helga Carrasco, Víking, en þeir félagar úr Breiðablik, Davíð Freyr Guðjónsson og Heiðar Benediktsson lentu í 3.sæti. Í kumiteflokki kvenna sigraði Telma Rut Frímannsdóttir  Katrínu Ingunni Björnsdóttur, Fylki, en María Helga Guðmundsdóttir og Kristín Magnúsdóttir lentu í 3.sæti.  Í kumiteflokki karla sigraði Kristján Helgi Carrasco hann Ólaf Engilbert Árnason úr Fylki eftir mjög skemmtilegan bardaga.  Í karlaflokki lentu Sverrir Ólafur Torfason, Víking,  og Sæmundur Ragnarsson, Þórshamri, í 3.sæti.

Þegar stigin voru talin saman í kvennaflokki þá stóð Telma Rut Frímannsdóttir, Afturelding, uppi sem sigurvegari og endurheimti því bikarmeistaratitil sinn frá árinu 2012. Í karlaflokki þá sigraði Kristján Helgi Carrasco, Víking, fimmta árið í röð sem er einsdæmi í sögu Karatesambandsins en enginn einstaklingur hefur unnið bikarmeistaratitil svo oft í röð.  Að auki jafnaði Kristján Helgi met þeirra félaga Ingólfs Snorrasonar og Jóns Inga Þorsteinssonar sem unnu bikarmeistaratitla 5 skipti hvor á árunum 1996 til 2005.

Heildarstig kvennaflokkur
1.sæti Telma Rut Frímannsdóttir, Afturelding        16 stig
2.sæti Kristín Magnúsdóttir, Breiðablik,                 14 stig
3.sæti María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamri      12 stig

Heildarstig karlaflokkur
1.sæti Kristján Helgi Carrasco, Víkingur                 18 stig
2.sæti Elías Snorrason, KFR                                   10 stig
3.sæti Heiðar Benediktsson, Breiðalbik                     9 stig

KAI_Bikamot_2014_verdlaunahafar
Á seinni myndinni má sjá verðlaunahafa á bikarmótinu, frá vinstri María Helga, Kristín, Telma Rut, Kristján Helgi, Heiðar og Elías.

Seinna um daginn var svo haldið Bushido bikarmótið fyrir unglinga þar sem þátttakendur  voru á aldrinum 12-17 ára, keppt var bæði í kata og kumite þar sem aldur keppenda er miðað við upphaf keppnisvetrar Karatesambandsins sem hefst að hausti til.

Helstu sigurvegarar voru;
Kata 12 ára, Þorsteinn Björn Guðmundsson, Breiðablik
Kata 13 ára, Mary Jane Padua Rafael, Víkingur
Kata 14 ára, Laufey Lind Sigþórsdóttir, Breiðablik
Kata 15 ára, Katrín Kristinsdóttir, Breiðablik
Kata 16-17ára, Bogi Benediktsson, Þórshamar
Kumite  drengja 12-13 ára, Viktor Steinn Sighvatsson, Fjölnir
Kumite telpna 12-13 ára, Mary Jane Padua Rafael, Víkingur
Kumite pilta 14-15 ára, Þorsteinn Freygarðsson, Fylkir
Kumite stúlkna 14-15 ára, Edda Kristín Óttarsdóttir, Fylkir
Kumite pilta 16-17 ára, Ólafur Engilbert Árnason, Fylkir

KAI_Bushidomeistarar_2014
Á meðfylgjandi mynd má sjá Bushido bikarmeistarana, efri röð frá vinstri Ólafur Engilbert, Þorsteinn, Bogi, Katrín og Laufey Lind.  Neðri röð frá vinstri Viktor Steinn, Þorsteinn Björn, Edda Kristín og Mary Jane.

About Helgi Jóhannesson