banner

Nýir dómara í kumite

Karatesambandið stóð fyrir dómaranámskeiði í Kumite, föstudaginn 28. mars í Smáranum, Kópavogi og sá Helgi Jóhannesson, EKF Referee, um námskeiðið. Ágætis mæting var á námskeiðið og í framhaldi af námskeiðinu var haldið skriflegt próf og fóru 7 einstaklingar í það. Á laugardeginum 29. mars fór svo fram verklegi hluti prófsins fram þegar Bushido bikarmót unglinga stóð yfir, þar sem 5 einstaklingar fóru í verklegt próf.

Þeir sem fengu ný réttindi eru;
Davíð Freyr Guðjónsson, Breiðablik, Judge-B
Heiðar Benediktsson, Breiðablik, Judge-B
María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamar, Judge-B
Snæbjörn Willemsson Verheul, Fjölnir, Judge-B

Við óskum þeim til hamingju með ný réttindi.

 

About Helgi Jóhannesson