banner

María Helga stóð sig best á seinni deginum í Salzburg

KAI_Maria_Helga_K1_okt2015Á seinni degi Heimsbikarmótsins í karate sem haldið var í Salzburg, Austurríki, stóð María Helga Guðmundsdóttir sig best af íslensku keppendunum. Í kumite kvenna -55kg mætti hún Rebecca Burnett frá Englandi í fyrstu umferð. María Helga náði góðu sparki í líkama hennar og vann að lokum 2-0. Í næstu umferð mætti hún Jennifer Warling frá Lúxemborg sem sigraði 3-0. Jennifer tapaði svo næstu umferð og því engin uppreisn hjá Maríu Helgu og hún var þá búin að klára sína keppni. Einnig kepptu Elías Snorrason og Bogi Benediktsson í kata karla, þar sem þeir duttu báðir út í fyrstu umferð. Elías mætti Patrick Valet frá Austurríki og Bogi mætti Saied Salman Abdulhusain frá Kuwait.

About Helgi Jóhannesson