Nýr landsliðsþjálfari í kumite
Í dag, laugardaginn 27.febrúar, var undirritaður samningur við Ingólf Snorrason um að Ingólfur tæki að sér landsliðsþjálfun í kumite. Undirritunin átti sér stað þegar þinghlé var gert á Karateþingi sem fór fram í Íþróttamiðstöð ÍSÍ. Ingólfur Snorrason þarf vart að kynna fyrir karatefólki, enda einn sigursælasti keppandi landsins, Ingólfur vann til 20 Íslandsmeistaratitla, ýmist í +80kg flokki eða opnum flokki í kumite auk meistaratitla í liðkeppni. Ingólfur var fastamaður í landsliði Íslands í kumite til fjöldra ára, keppti á fjölda alþjóðlegra móta, Norðurlanda-, Evrópu- og Heimsmeistaramót, með góðum árangri.
Karatesamband Íslands býður Ingólf velkominn til starfa.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Reinharð Reinharðsson, Formann Karatesambandisins, skrifa undir samninginn við Ingólf Snorrason.