banner

Dómaranámskeið í kata

Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kata föstudaginn 24.febrúar næstkomandi kl. 19:00, í Ráðstefnusal-D í ÍSÍ, Laugardal.
Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Fyrst verður fyrirlestur og í framhaldi af honum skriflegt próf, að loknu skriflegu prófi verður haldið verklegt próf í sal Karatefélags Reykjavíkur (í Laugardalslaug).
Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Farið verður yfir nýjar keppnisreglur WKF 1.1.2017. Allir sem ætla í próf, þurfa að sýna algenga keppniskata úr eigin stíl ásamt því að sýna algenga keppniskata úr öðrum stíl.

Ekki er nauðsynlegt að fara í skriflegt próf þó svo að fólk mæti á fyrirlesturinn, en hægt er að nálgast reglurnar og prófspurningarnar á íslensku og ensku á vef KAÍ ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi (http://kai.is/keppnisreglur-wkf/).

Skráning á meðfylgjandi síðu;  http://goo.gl/forms/dS8s1Qx5FD

About Helgi Jóhannesson