Nýir dómarar hjá KAÍ
Karatesambandið stóð fyrir dómaranámskeiði í kata og kumite nú í vor. Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sá um námskeiðin sem var í formi fyrirlesturs og í framhaldi af honum var haldið skriflegt próf fyrir þá sem það kjósa. Farið var yfir keppnisreglur WKF útgáfu 2017.
Góð þátttaka var á námskeiðinum og vill Karatesambandið koma á framfæri þakklæti fyrir góð viðbrögð við óskum um betri þátttöku í starfi sambandsins.
Á laugardeginum, 25. mars, á meðan þriðja Bushidómóti vetrarins fór fram, var haldið verklegt próf. Til að ná prófi og fá Judge-B réttindi í kumite og/eða kata, þarf að standast bæði skriflegan og verklegan hluta prófsins.
Nýir dómarar í kumite eru;
Máni Karl Guðmundsson, Fylkir, Kumite Judge-B
Ólafur Engilbert Árnason, Fylkir, Kumite Judge-B
Nýir dómarar í kata eru;
Arnar Þór Björgvinsson, Aftureldingu, Kata Judge-B
Birkir Jónsson, Þórshamar, Kata Judge-B
Guðbjörg Rún Torfadóttir, Fjölni, Kata Judge-B
Ragnar Eyþórsson, Breiðablik, Kata Judge-B
Við óskum þeim til hamingju með áfangann.